Björn Halldórsson minningarorð
Frá er fallinn Björn Halldórsson fyrrum formaður Hallormsstaðaskóla. Björn lagði á sig ófáar ferðir inn í skóg og oft með vannýtt hráefni til verkefnavinnu fyrir nemendur í leiðinni. Myndir hér að neðan eru af nemendum sem sútuðu kálfaskinn af andvana fæddum kálfi frá býlinu hans Björns, Akri. Kálfaskinnin munu vera til um ókomna tíð eins mun minning um öflugan formann lifa áfram í Hallormsstaðaskóla.
Frá er fallinn Björn Halldórsson fyrrum formaður Hallormsstaðaskóla
Mætur maður er genginn og missirinn mikill. Í dag verður Björn Halldórsson jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju.
Björn Halldórsson tók við sem formaður Hallormsstaðaskóla í júní 2020 og gegndi því hlutverki til loka árs 2022. Björn kom inn á krefjandi tímum í sögu skólans og eins og honum var einum lagið, bretti hann upp ermar og hóf að vinna af krafti. Sá kraftur einkenndi öll verkefni sem hann tókst á hendur á stjórnartíð sinni. Björn brann fyrir gildum Hallormsstaðaskóla og sá tækifærin í þeirri vegferð sem skólinn var kominn á. Hann nýtti öflugt tengslanet sitt til að tengja skólann við marga sérfræðinga, nýtti hvert tækifæri til að segja frá skólanum og lagði á sig ófáar ferðir inn í skóg og oft færandi hendi með vannýtt hráefni til verkefnavinnu fyrir nemendur í leiðinni.
Björn var reynslumikill þegar kom að stjórnarformennsku og hann lét verkin tala. Hvatningarorð hans til nýrrar stjórnar þegar hann lét af störfum sem formaður segir mikið um afstöðu hans og elju í starfi sínu fyrir skólann, en þar sagði hann: „Hallormsstaðaskóli er auðlind sem Austurland á að nýta betur og mikilvægt er að hafa trú á þeirri starfsemi og að allir tali máli skólans sem víðast. Einhendið ykkur í öflugt starf.“
Hallormsstaðaskóli á Birni gríðarlega mikið að þakka fyrir mikið og óeigingjarnt starf í dýrmætri sögu skólans.
Sendum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.